Boðið er upp á hágæða heilsufæði á Heilsustofnun. Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, bygg, ýmis konar heilkorn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Fæðið inniheldur einnig egg og mjólkurvörur. Leitast við að nota eins lítið af salti, harðri fitu og sykri og mögulegt er.

Það er stefna Heilsustofnunar að hafa sem minnst af unnum matvælum, við veljum okkar hráefni mjög vandlega og allur matur er eldaður frá grunni á staðnum.

Brauðin sem bökuð eru á staðnum eru úr heilkorni og án viðbætts sykurs. Gerlaus brauð og súrdeigsbrauð eru einnig á boðstólum.

Hluti af grænmetinu og öðrum matjurtum sem boðið er upp á er lífrænt ræktað í eigin gróðurhúsum. Gróðurhúsin og allt landsvæði Heilsustofnunar er yfirlýst svæði án erfðabreyttra lífvera.

Kjöt er ekki í boði en boðið er upp á fiskrétti tvisvar í viku og mikið framboð er af mjólkurvörum. Boðið upp á fjallagrasate og te hússins sem er gert úr þekktum íslenskum jurtum. Kaffi er í boði með morgunmat fyrir þá sem það vilja.

Litið er á matinn sem stóran hluta af fræðslu og meðferð gestanna. Þeir sem þurfa að létta sig fá m.a. fræðslu um rétta skammtastærð, matarval og fræðslu um núvitund á matmálstímum. Einnig er boðið upp á orkubætt fæði og næringardrykki fyrir þá gesti sem eru í orku- eða næringarskorti.

Þeir sem þurfa á sérfæði að halda fá ráðgjöf hjá næringarráðgjafa. Næringarráðgjafi veitir einstaklingsráðgjöf fyrir alla þá dvalargesti sem þarfnast leiðbeininga með mataræði sitt til að bæta heilsu og styðja við bætta endurhæfingu.
Boðið er upp á sérfæði sem tengist t.d. glútenóþoli, laktósaóþoli, ýmsu fæðuofnæmi s.s. fyrir hnetum og fiski; IBS (iðraólgu), harðlífi og vegna ýmissa annarra meltingarvandamála.

Fjölbreytni í mataræði
Áhersla er lögð á fjölbreytni í fæðuvali til að tryggja öll nauðsynleg næringarefni. Sérstök áhersla er lögð á grænmeti og ávexti, fisk, hreinar mjólkurvörur, jurtaolíur, gróf brauð og annan kornmat og vatn til drykkjar.

Miðað er við að fæðið innihaldi

  • A.m.k. 500 grömm af grænmeti og ávöxtum á dag, þar af a.m.k. 200 g af grænmeti og 200 g af ávöxtum, auk kartaflna.
  • Fiskmáltíð tvisvar í viku, fyrir utan álegg eða salöt úr fiski.
  • Tvo skammta af hreinum mjólkurvörum á dag,  án viðbætts sykurs eða sætuefna. Ostur getur komið í stað mjólkurvara að hluta til.
  • Hollar fitur í feitum fiski, jurtaolíum, hnetum, möndlum og avókadó.
  • Auk þess er lýsi og lýsistöflur í boði og gott aðgengi að drykkjarvatni.

Sérstaða Heilsustofnunnar í mataræði

  • Boðið er upp á heilsufæði alla daga vikunnar. Litið er á matinn sem þátt í fræðslu og meðferð.
  • Það er stefna Heilsustofnunar að matur sé matreiddur frá grunni á staðnum og áhersla er lögð á að velja hráefni vandlega út frá ferskleika, gæðum og sem mest án aukaefna.
  • Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu, til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, bygg, ýmis konar heilt korn, grófmalað mjöl ásamt grænmeti og ávöxtum.
  • Alla daga er í boði sykurlaust meðlæti í tetíma.
  • Grænmeti, kryddjurtir og annað sem ræktað er á staðnum er lífrænt ræktað. Við innkaup á matvælum er lögð áhersla á að velja íslenska framleiðslu.
  • Kjöt er ekki á matseðli.
  • Boðið er upp á te í úrvali m.a. te hússins sem er gert úr íslenskum jurtum, sem tíndar eru af starfsmönnum stofnunarinnar í íslenskri náttúru. Eingöngu er boðið upp á kaffi á morgnana.

Comments are closed.